Arctic Heli Skiing Ferðalýsingar

Árið 2013 verður sjötta árið í röð sem boðið verður uppá reglulegar þyrluskíðaferðir á Tröllaskaganum og Íslandi yfir höfuð, eftir að mjög árangursrík

Ferðalýsingar

Árið 2013 verður sjötta árið í röð sem boðið verður uppá reglulegar þyrluskíðaferðir á Tröllaskaganum og Íslandi yfir höfuð, eftir að mjög árangursrík forkönnun á möguleikum til þyrluskíða iðkunnar átti sér stað vorið 2008. Jökull Bergmann ásamt alþjóðlegum sérfræðingum í þyrluskíðun hefur útbúið 4 og 6 daga þyrluskíðaferðir sem farnar verða í mars, apríl, maí og júní 2013 með það að markmiði að kanna svæði sem aldrei hafa séð mann á skíðum áður, skíða áður óskíðaða tinda, nefna leiðir og bjóða þér uppá að taka þátt í stórkostlegu ævintýri á fjöllum. Að auki munum við bjóða uppá dagsferðir með það að markmiði að gefa fleirum kost á að prófa þetta ótrúlega skemmtilega sport.
 
Við skíðum frá Klængshóli í Skíðadal þar sem að allar ferðir byrja og enda og skíðasvæði okkar nær um allan Tröllaskagann sem og Hulduland sem er skaginn austan Eyjafjarðar. Frá Klængshóli er aðeins örstutt flug á næstu tinda, t.d Hestinn sem gefur okkur 1200 skíðaða fallmetra beint heim á hlað á Kængshóli. Hvort sem um 4 daga ferð eða dagsferð er að ræða skíðum við í einum til þremur 4 manna hópum þar sem hver hópur hefur sinn faglærða fjallaleiðsögumann sér til fulltingis.

    Dagsferðir 2013
 
    Innifalið í verði

  • 4 Ferðir á mann
  • Veglegur hádegisverður á fjalli
  • Apré ski snarl í lok dags
  • Leiðsögn fagmanna
  • Öryggisfræðsla og notkun á öryggisbúnaði
 
Ekki innifalið í verði: Ferðir, þátttakendur mæta á eigin bílum og nota - Slysatryggingar - Auka skíða ferðir - Skíða útbúnaður
 
Dagsferð
Mæting á Klængshóli í Skíðadal kl 09:00 að morgni dags. Í byrjun dags er farið yfir alla helstu öryggis þætti þyrluskíðamennsku, flugmaðurinn kynnir fyrir okkur farskjótann og útskýrir vel þá fjölmörgu öryggisþætti sem fólk þarf að vera meðvitað um í umgengni við þyrlur. Þá tekur leiðsögumaðurinn við og fer yfir það hvernig þetta fer nú allt saman fram ásamt því sem við tökum æfingu á leit í snjóflóðum, lærum á snjóflóðaýlana og þau öryggistæki sem með eru í för. Við skíðum í fjöllunum í Skíðadal og á innanverðum Tröllaskaganum og snæðum hádegisverð á fjalli. Eftir 3-4 bunur niður nokkrar af bestu skíðabrekkum landsins höldum við alsæl heim á leið. Fyrir þá sem ekki hafa fengið nóg eftir 4 ferðir er möguleiki á að kaupa aukaferðir. 
 
 
    4 og 6 daga ferðir 2013
 
    Private 4 eða 8 skíðamenn

  • 5 eða 10 klst flugtími fyrir 4 daga ferð
  • 7 eða 14 klst flugtími fyrir 6 daga ferð
  • 4 eða 6 mögulegir skíðadagar
  • 4 eða 6 nætur á Klængshóli í tveggja manna her.
  • Allur matur
  • Leiðsögn fagmanna
  • Öryggisfræðsla og notkun á öryggisbúnaði
     Semi Private 8 eða 12 skíðamenn

  • 4 klst flugtími per hóp fyrir 4 daga ferð
  • 5 klst flugtími per hóp fyrir 6 daga ferð
  • 4 eða 6 mögulegir skíðadagar
  • 4 eða 6 nætur á Klængshóli í tveggja manna her.
  • Allur matur
  • Leiðsögn fagmanna
  • Öryggisfræðsla og notkun á öryggisbúnaði
Ekki innifalið í verði: - Slysatryggingar - Áfengir drykkir - Auka flugtími - Skíða útbúnaður

Ferðaáætlun dag frá degi
 
Dagur 1

Koma á Kængshól seinni part dags um kl 1800 sem við hittum leiðsögumennina og kynnum okkur fyrirkomulag ferðarinnar. Eftir ljúfengan kvöldverð gefst kostur á að slaka á og undirbúa sig fyrir fyrsta skíðadaginn eða skreppa í rólegan göngutúr í stórkostlegri náttúru Skíðadalsins. Fyrir þá sem eru í tímaþröng er einnig hægt að mæta að morgni dags 2 með t.d flugi frá Reykjavík.
 
Dagur 2-4 eða 2-6

Í byrjun fyrsta dags er farið yfir alla helstu öryggis þætti þyrluskíðamennsku, flugmaðurinn kynnir fyrir okkur farskjótann og útskýrir vel þá fjölmörgu öryggisþætti sem fólk þarf að vera meðvitað um í umgengni við þyrlur. Þá tekur leiðsögumaðurinn við og fer yfir það hvernig þetta fer nú allt saman fram ásamt því sem við tökum æfingu á leit í snjóflóðum, lærum á snjóflóðaýlana og þau öryggistæki sem með eru í för. Þegar þessu er lokið tekur við leit okkar að óskíðuðum brekkum, fyrstu niðurferðum, landkönnun og við tökum þátt í að skrifa nýjan kafla í sögu skíðamennsku á Íslandi. Í lok dags skellum við okkur í pottana á Dalvík og gæðum okkur á ljúfengum kræsingum hjá húsfreyjunni á Klængshóli. Á venjulegum degi snæðum við morgunmat um kl 0800 og erum komin á skíðin uppúr kl 1000 og skíðum fram á seinnipart dags.
 
Dagur 5 eða 7

Við byrjum á að pakka saman farangrinum okkar áður en haldið er af stað. Þennan síðasta skíðadag rennum við okkur fram að hádegi, snæðum kjarngóðan hádegisverð á fjalli og fljúgum svo heim á leið. Við kveðjum nýja vini í Skíðadalnum og þökkum fyrir ævintýralega upplifun.

 
Ocean skiing in Iceland. Photo: Fredrik Schenholm Bathing in Myvatn region after a hard day of skiing in Iceland Surf or ski? Why choose. Photo: Fredrik Schenholm
 
  • Matthias Girauld skiing in Iceland

Arctic Heli Skiing   |   Box 88   |   620 Dalvík   |   ÍSLAND   |   Sími 698 9870   |   info@arcticheliskiing